Ný stjórn er tekin við
Ný stjórn SVEF tók við störfum á aðalfundi samtakanna þann 22. maí síðastliðinn. Stjórnin samanstendur af kempum og nýliðum í faginu sem eiga það sameiginlegt að brenna fyrir vefmálum.
Á fundinum var farið yfir starfsárið sem er að baki: átta viðburði, tvö Klúðurkvöld og vefverðlaun sem seldust upp á tíu dögum. Fráfarandi stjórn var þökkuð vel unnin störf.
Áherslur næsta starfsárs
Stjórnin ætlar að leggja áherslu á aðgengismál, fjölbreyttari viðburði utan höfuðborgarsvæðisins og að efla tengsl við menntastofnanir. Fyrsti viðburður starfsársins verður í október.
„Við hlökkum mikið til starfsársins með ykkur og getum ekki beðið eftir að halda vefverðlaunin í 26. sinn.“
Nánari upplýsingar um dagskrá og staðsetningu verða birtar á samfélagsmiðlum og hér á vefnum á næstu vikum.