Næsti viðburður
Sigurvegarar segja frá – SVEF x Kolibri
SVEF og Kolibri blása til fyrsta viðburðar vetrarins. Við kynnumst verðlaunaverkefnum af Íslensku vefverðlaununum — sögunum á bak við þau og hvar þau standa í dag. Erindi 17–18:30, spjall og tengslamyndun eftirá. Léttar veitingar í boði.
Helena Rut og Gunnar Bjarki, stofnendur Undralings, segja okkur frá verkefninu sínu sem var valið app ársins, stafræn lausn ársins og verkefni ársins 2025!
Frilli, hönnuður hjá Kolibri, segir okkur frá Okkar heimi, sem var valinn samfélagsvefur ársins 2025.
Rakel Björt, framendaforritari hjá Helix Health, segir okkur frá Silva, sem hreppti verðlaunin fyrir tækninýtingu ársins 2025.